Gagnabjörgun af snjallsímum og spjaldtölvum

Við björgum gögnum af öllum gerðum af snjallsímum og spjaldtölvum; Apple, Samsung, Huawei, Nokia, Sony, LG, HTC o.fl. Hvort sem þeir virka, eru með brotna skjái, rakaskemmdir eða skemmdir á annan hátt.

Eina fyrirtækið á Íslandi sem sérhæfir sig í gagnabjörgun, starfandi síðan 2012.

Gagnabjörgun af snjallsímum - Datatech

Samstarfsaðilar

PC-3000 logo
Seagate logo
Western Digital logo
DeepSpar logo
PC-3000 logo
Seagate logo
Western Digital logo
DeepSpar logo

Við björgum gögnum af öllum gerðum

iPhone & iPad

Allar gerðir af Apple iPhone og iPad, þar á meðal nýjustu gerðir með A-chip og M-chip örgjörvum.

Android símar

Samsung, Huawei, Sony, LG, OnePlus, Xiaomi, Google Pixel og fleira.

Spjaldtölvur

iPad, Samsung Galaxy Tab, Huawei MatePad og aðrar Android spjaldtölvur.

Gagnabjörgunarbúnaður

Algengar skemmdir á snjallsímum

Vatnsskemmdir

Síminn datt í vatn, sundlaug, salernisker eða varð fyrir rigningu. Við getum oft bjargað gögnum þó síminn virki ekki lengur.

Brotinn skjár

Skjárinn er brotinn og síminn bregst ekki við snertingu. Við getum nálgast gögnin með öðrum aðferðum.

Gleymt lykilorð

Man ekki PIN eða lykilorð og komst ekki inn í símann. Við getum í sumum tilvikum hjálpað.

Hugbúnaðarvilla

Síminn frýs, endurstillir sig eða gögn hurfu eftir uppfærslu. Hugbúnaðarvillur eru oft leysanlegar.

Fyrstu aðgerðir skipta öllu máli!

Ef síminn þinn hefur orðið fyrir vatnsskemmdum eða öðrum skemmdum er mikilvægt að bregðast rétt við strax. Rangar aðgerðir geta gert illt verra og jafnvel útilokað möguleika á gagnabjörgun.

Við höfum fengið mörg verkefni þar sem rangar aðgerðir hafa valdið frekari skemmdum. Hafðu strax samband við okkur til að fá rétta ráðgjöf.

  • Ekki reyna að setja símann í hrísgrjón
  • Ekki nota hárþurrku eða aðra hitagjafa
  • Ekki tengja símann við hleðslutæki ef hann er blautur
  • Ekki reyna að kveikja á símanum aftur og aftur
  • Ekki fara með símann á venjulegt tölvuverkstæði

Við björgum gögnum úr

  • iPhone gagnabjörgun (allar gerðir)
  • Android gagnabjörgun (Samsung, Huawei, Sony, LG, o.fl.)
  • Spjaldtölvur (iPad, Android spjöld)
  • Vatnsskemmdir og rakaskemmdir
  • Brotnir eða skemmdir skjáir
  • Skemmd USB tengi
  • Hugbúnaðarvillur eftir uppfærslur

Algeng einkenni

  • Síminn kveikir ekki
  • Vatnsskemmdir (dottið í vatn)
  • Brotinn skjár
  • Man ekki PIN eða lykilorð
  • Síminn frýs eða endurstillist
  • Gögnin hurfu eftir uppfærslu

Verðupplýsingar

Gagnabjörgun af snjallsímum er reiknuð eftir tímagjaldi vegna þess hversu mismunandi verkefnin geta verið og hversu mikil vinna fer í hvert verkefni.

Tímagjald
19.697 kr./klst
án VSK

Verkefni taka oftast 6-12 klukkustundir auk varahluta ef þörf er á. Við gefum alltaf verðmat áður en vinna hefst.

* Ef okkur tekst ekki að bjarga gögnunum greiðir þú aðeins 50% af vinnukostnaði auk varahluta.

Spurt og svarað

Hvað kostar gagnabjörgun af snjallsímum?

Tímagjald fyrir gagnabjörgun af snjallsímum er 19.697 kr./klst án VSK. Verkefni taka oftast 6-12 klukkustundir auk varahluta ef þörf er á. Við gefum alltaf verðmat áður en vinna hefst.

Hvað tekur gagnabjörgun langan tíma?

Við biðjum viðskiptavini að gera ráð fyrir að minnsta kosti 30 dögum fyrir gagnabjörgun af snjallsímum. Tíminn fer eftir hversu flókin bilunin er og hvort þörf er á varahlutum.

Hvað ef gagnabjörgun tekst ekki?

Ef okkur tekst ekki að bjarga gögnunum greiðir þú aðeins 50% af vinnukostnaði auk kostnaðar vegna varahluta sem keyptir voru fyrir verkefnið.

Getið þið bjargað gögnum af símum með brotinn skjá?

Já, við getum oft bjargað gögnum þó skjárinn sé brotinn. Við notum sérhæfðan búnað til að nálgast gögnin án þess að þurfa að nota skjáinn.

Hvað segja viðskiptavinir okkar?

Við erum stolt af framúrskarandi þjónustu og árangri

Ég fékk mjög góða þjónustu. Móttaka verkefna er einföld og góð. Þjónustan er unnin hratt og örugglega. Í mínu tilfelli var um að ræða erfitt verkefni en ég fékk öll gögnin mín til baka.

Þorgeir Arnórsson

Stutt og laggott.. Kom með ónýtan disk en eftir mikið puð hjá Datatech var hægt að bjarga öllu úr disknum og setja yfir í þennan 'itty bitty' disk frá þeim. Draumur og allir ánægðir að geta loks séð allt aftur.

Leifur Reynir Björnsson

Ég fékk fyrirmyndarþjónustu. Persónuleg tölvugögn mín voru illu heilli að mestu leyti vistuð á einum diski, sem varð allt í einu ólesanlegur. Eftir bilanagreiningu var mér bent á Datatech. Þar var gögnunum bjargað 100%. Öll samskipti voru eins og best verður á kosið.

Bjarni Frímann Karlsson

Virkilega hröð og professional þjónusta. Bjargaði gögnunum mínum 100% og var alltaf til staðar að svara hvaða spurningum sem er. Mæli með.

Helga Lilja Magnúsdóttir

Apple verkstæði gat ekkert gert fyrir mig og bentu mér á Datatech en lofuðu ekki árangri. Ég var ekki bjartsýnn en ákvað að prófa. Þetta tók tíma en tókst og það var staðið við kostnaðaráætlunina. Ég get þeim bestu mögulegu meðmæli.

Gunnar Árnason, Hljóðmaður

Aðrar gagnabjörgunarþjónustur

Við bjóðum einnig upp á gagnabjörgun af öðrum tegundum geymslumiðla

Pixlar móttökustaður

Hvernig á að koma búnaðinum til okkar?

1

Stofnaðu þjónustubeiðni

Fylltu út eyðublaðið á vefsíðunni okkar

2

Komdu með tækið til Pixlar

Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík

3

Fáðu bilanagreiningu og verðmat

Þú samþykkir eða hafnar tilboðinu

Pixlar – Móttökustaður

Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík

Virka daga: 10:00 – 18:00

Laugardaga: 11:00 – 15:00

Einnig er hægt að senda búnaðinn í pósti. Hafðu samband til að fá leiðbeiningar.

Tapaðir þú gögnum af símanum þínum?

Stofnaðu þjónustubeiðni og komdu búnaðinum til okkar. Við erum sérfræðingar í gagnabjörgun af snjallsímum og spjaldtölvum og höfum bjargað gögnum úr þúsundum tækja.

Neyðartilfelli?

Við bjóðum upp á hrað- og neyðarþjónustu þegar mikið liggur á!

Hraðþjónusta í boði, verkefni er hafið næsta virka dag.
Neyðarþjónusta í boði, verkefni hafið samdægurs ef komið er fyrir hádegi.