Lentir þú í gagnatapi?

Fyrsta skrefið er að stofna þjónustubeiðni

Fylltu út formið hér fyrir neðan og veldu svo hvernig þú kemur búnaðinum til okkar . Við byrjum á að bilanagreina búnaðinn og sendum þér svo tilboð í gagnabjörgun. Ef um neyðartilfelli er að ræða, veldu þá neyðarþjónustu til að komast fremst í röðina

Upplýsingar

Þú getur haft samband við okkur á eftirfarandi hátt. Við svörum öllum fyrirspurnum eins fljótt og auðið er.

Opnunartímar

Virka daga 10-18, Laugardaga 11-15

Sendu okkur þjónustubeiðni

Móttaka verkefna í Reykjavík fer fram hjá Pixlar, ljósmynda og prentþjónustu.

Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík (sjá kortið hér að neðan)

Spurt og svarað

Spurt og svarað

Finndu svör við algengum spurningum um gagnabjörgun og þjónustu okkar.

Datatech er eina fyrirtækið á Íslandi sem sérhæfir sig í gagnabjörgun og hefur verið starfandi í faginu í yfir 13 ár og býr yfir sérhæfðum tæknibúnaði og þekkingu til að klára málin á Íslandi. Epli, Advania, Elko, Opin kerfi og Tölvulistinn treysta okkur fyrir gögnum sinna viðskiptavina og vísa þeim til okkar þegar þarf að bjarga dýrmætum gögnum. Sérfræðingar okkar hafa yfir 22 ára starfsreynslu í úrlausn flókinna gagnabjörgunar verkefna. Mikilvægt er að velja trausta aðila með þekkingu og raunverulega reynslu í faginu til þess að endurheimta gögnin þín þar sem fyrstu aðgerðir skipta öllu máli og hætta er á 100% gagnatapi ef óreyndir aðilar reyna að bjarga gögnunum, en við höfum séð mörg dæmi um það.
Kostnaður fer eftir því hvað er að búnaðinum og þar sem það eru til fjölmargar tegundir og gerðir af gagnageymslu miðlum þurfum við að bilanagreina búnaðinn, athuga hvort þörf sé á varahlutum eða ekki, meta hversu margar vinnustundir munu fara í verkefnið (út frá reynslu af sambærilegum verkefnum sem við höfum unnið). Að því loknu getum við sent fast tilboð í gagnabjörgun. Sé tilboði í gagnabjörgun hafnað er gjald innheimt fyrir vinnustundir við bilanagreiningu skv. verðskrá. Ef tilboðið er samþykkt, færðu mögulega beiðni um innborgun ef þörf er á að kaupa panta varahluti.
Við bilanagreinum búnaðinn og sendum þér svo nákvæma skýrslu sem greinir frá áætluðum líkum á endurheimt gagna og verðtilboð í gagnabjörgun. Við notum gagnabjörgunarbúnað frá Acelab, Deepspar og HDD Surgery sem eru frumkvöðlar í gagnabjörgun í heiminum og leiðandi í þessum bransa.
Það er erfitt að giska fyrirfram á hvað verkefnið muni taka langan tíma, verkefnin eru mjög misjöfn. Þú getur hinsvegar valið um hefðbundinn forgang, hraðþjónustu eða neyðarþjónustu. Þó þú veljir hrað eða neyðarþjónustu þýðir það ekki að vinna við sjálfa gagnabjörgunina gangi hraðar, heldur verður aðeins byrjað á verkefinu þínu fyrr heldur en ef þú velur venjulegan forgang. Verkefni í venjulegum forgangi eru tekin í röð sem þau berast og algengur biðtími er 5 dagar þar til byrjað er á verkefinu frá því að búnaður er móttekin af Datatech eða samstarsaðilum.
Ef þú hefur lent í því óhappi að tölvan þín les ekki diskinn þinn er mikilvægt að slökkva strax á tölvunni eða á disknum sjálfum sé þetta utanáliggjandi diskur og taka hann úr sambandi. Ekki reyna neinar tilraunir eða niðurhala ókeypis hugbúnaði af netinu. Í flestum tilfellum er um vélbúnaðarbilun að ræða og þá gerir hugbúnaðarlausn ekkert gagn og getur hreinlega ollið því að skemmdirnar verði verri. Ef þú vilt hámarka líkurnar á árangursríkri og öruggri gagnabjörgun, komdu þá strax með harða diskinn eða tölvuna þína í heilu lagi til okkar þar sem fagmenn okkar hafa áratuga reynslu og þekkja alla mögulegar bilanir í SSD og hörðum diskum og vita hvernig er best að endurheimta gögnin á sem öruggastan hátt og lágmarka tjón þitt.
Eftir að vinnu við gagnabjörgun er lokið færðu sendan skráalista á .html sniði sem þú getur skoðað í hvaða vafra sem er. Hann sýnir öll þau gögn sem hægt var að bjarga og er sendur til að staðfesta að gagnabjörgun hafi tekist. Gögnin eru afhent ýmist á nýjum flökkurum sem þú getur valið að kaupa hjá okkur eða komið með þinn eiginn eða við sendum gögnin rafrænt ef um lítið gagnamagn er að ræða (undir 100GB).
Það getur komið fyrir að gagnabjörgun reynist ómöguleg. T.d. búið er að panta leshausa en þeir skemmast við að reynt sé að lesa með þeim vegna örfínna yfirborðs skemmda á hörðum diskum. Okkur tekst að bjarga gögnum í yfir 92% tilfella af þeim málum sem við höfum fengið til okkar síðasta áratug og hafa verið samþykkt. Þannig miðað við þá tölfræði eru líkurnar góðar. Við komum hreint fram í byrjun og látum þig vita hvort í tilboðinu hvaða líkur við teljum á góðri endurheimt. Ef þú hefur fengið tilboð í gagnabjörgun og verkefnið tekst ekki færðu 50-70% afslátt af vinnu við gagnabjörgun* eftir tegund búnaðar, en greiðir einnig fyrir varahluti sem hafa verið keyptir.
Við fáum mjög reglulega t.d. snjallsíma og fartölvur sem hafa lent í vökva eða raka. Mikilvægt er að þú reynir ekki að kveikja á tækinu eftir að tækið hefur lent í vökva eða raka, við það fer rafstraumur um tækið og getur leitt inn á staði þar sem hann veldur frekari skemmdum. Kostnaður er mjög mismunandi en þetta eru erfiðustu verkefnin sem við tökum að okkur og því má reikna með að lágmarki 10 vinnustundum í málið ef þetta er fartölva eða snjallsími. Einnig skiptir máli hvernig vökvi fór yfir búnaðinn. Við þurfum því að meta hvert og eitt mál og gefum fast verðtilboð eftir skoðun.
Við bjóðum öllum viðskiptavinum upp á að senda búnað til okkar frítt, þú einfaldlega stofnar þjónustubeiðni og velur „senda búnað með Póstinum" og á næstu síðu fyllir þú út heimilisfang þitt og færð til baka skráningarnúmer hjá Póstinum og strikamerki. Þú pakkar öllu vel inn og ferð svo með á næsta pósthús, skannar strikamerkið við færibandið og þá prentast úr merkimiði sem þú límir á pakkann.
Við vinnum eftir strangri öryggisstefnu sem er yfirfarin á hverju ári, og erum í ferli hjá við að fá ISO27001 öryggisvottun. Allir starfsmenn og samstarfsaðilar Datatech eru bundnir þagnarskyldu gagnvart þjónustukaupanda, og ber skylda til að gæta fyllsta trúnaðar varðandi gögn og málefni sem honum verður kunnugt um hjá þjónustukaupanda. Gildir þagnarskyldan bæði utan og innan fyrirtækisins og einnig þótt starfsmaður Datatech láti af störfum hjá fyrirtækinu. Datatech mun ekki undir neinum kringumstæðum afhenda þriðja aðila upplýsingar um viðskiptavini eða persónuleg gögn hans. Gagnageymslur Datatech eru ónettengdar og dulkóðaðar með strangri aðgangstýringu, aðeins sá tæknimaður sem er að vinna í málinu hefur aðgang að þeim og aðeins á meðan vinnu stendur. Gögnum er eytt varanlega sjö (7) dögum eftir að þau eru afhent þjónustukaupanda. Öll tilboð og samningar við þjónustukaupana eru trúnaðarmál milli Datatech og þjónustukaupanda.
Neyðartilfelli?

Við bjóðum upp á hrað- og neyðarþjónustu þegar mikið liggur á!

Hraðþjónusta í boði, verkefni er hafið næsta virka dag.
Neyðarþjónusta í boði, verkefni hafið samdægurs ef komið er fyrir hádegi.