Gagnabjörgun af diskastæðum (RAID)
Við búum yfir sérhæfðum tækjabúnaði til þess að bjarga gögnum af RAID stæðum. Hægt er að framkvæma RAID gagnabjörgun þegar skráargeiri (e.partition) af RAID stæðunni kemur ekki fram í Windows eða Disk utility í MAC OS og einnig þegar t.d. tveir diskar eru bilaðir í RAID stæðu eða jafnvel fleiri.
Eina fyrirtækið á Íslandi sem sérhæfir sig í gagnabjörgun, starfandi síðan 2012.

Samstarfsaðilar

Hvernig björgum við gögnum af RAID stæðum og NAS diskum?
Við tökum alla diskana úr RAID stæðunni og skoðum hvern og einn með tilliti til vélrænna skemmda. Ef diskar eru skemmdir eru þeir lagfærðir eða klónaðir yfir á nýja diska.
Allir diskarnir eru síðan tengdir við sérhæfðan RAID gagnabjörgunarbúnað þar sem stæðan er endurbyggð í sýndarumhverfi og gögnin svo flutt yfir á nýjan geymslumiðil.
Sérfræðingar okkar hafa yfir 22 ára starfsreynslu í úrlausn flókinna gagnabjörgunarverkefna. Datatech er eina fyrirtækið á Íslandi sem sérhæfir sig í gagnabjörgun og hefur verið starfandi í faginu síðan árið 2012.
Fyrstu aðgerðir skipta öllu máli!
Þegar þú lendir í því óhappi að ná ekki sambandi við RAID stæðuna þína og gögnin eru í hættu, þá er mikilvægt að leita strax til fagaðila og ekki láta venjuleg tölvuverkstæði reyna gagnabjörgun fyrst, þar sem þau eru hvorki með réttu tækin eða tæknilega þekkingu til að ná árangri.
Við höfum fengið mörg verkefni til okkar sem hafa farið fyrst til venjulegra tölvuverkstæða þar sem tilraunastarfsemi þeirra hefur gert illt verra og í jaðartilvikum gert gagnabjörgun ómögulega.
- Ekki reyna að initializa diskana í stýrikerfinu
- Ekki reyna að fara eftir ráðleggingum frá YouTube
- Ekki reyna ókeypis gagnabjörgunarhugbúnað
- Ekki fara með diskastæðuna á venjulegt tölvuverkstæði
- Slökktu strax á búnaðinum við bilun
- Merktu diskana í réttri röð áður en þeir eru teknir úr
RAID gerðir sem við styðjum
Við björgum gögnum af öllum algengum RAID gerðum, þar á meðal:
Skráarkerfi
Framleiðendur sem við styðjum
Við björgum gögnum úr
- Fleiri en einn diskur bilaður samtímis
- RAID uppsetning eyðilögð
- Controller bilun
- Óviljandi eyðing eða forsníðing á RAID
- Firmware vandamál
- Rebuild bilun
- Stripe/parity vandamál
- Skemmdir á einstökum diskum
Algeng einkenni
- RAID array þekkist ekki
- Degraded mode
- Gögn óaðgengileg
- Rebuild failure
- Multiple disk failure
- Controller villa
Fyrir fyrirtæki
RAID kerfi eru oftast notuð af fyrirtækjum til að geyma mikilvæg gögn. Við skiljum að gagnatap og niðritími getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir reksturinn. Við bjóðum upp á neyðarþjónustu fyrir fyrirtæki sem þurfa skjóta aðstoð.
- Sérhæfður búnaður (PC-3000 RAID, DeepSpar) sem kostar tugi milljóna
- Trúnaður og öryggi gagna tryggð — við undirbúum trúnaðarsamninga
- Fast verð gefið eftir bilanagreiningu — engar óvæntar viðbætur
- Neyðarþjónusta í boði — hraðari afgreiðsla ef nauðsyn krefur

Algengar spurningar um RAID gagnabjörgun
Svör við algengum spurningum um gagnabjörgun af RAID kerfum
Hvað tekur gagnabjörgun af RAID stæðum langan tíma?
Tíminn fer eftir flækjustigi og gagnamagni. Við gefum tímaáætlun eftir bilanagreiningu. RAID kerfi geta tekið lengri tíma en stakir diskar vegna þess að vinna þarf með marga diska samtímis og endurbyggja arraið.
Hvað kostar gagnabjörgun af RAID stæðum?
Verð á gagnabjörgun fer eftir gagnamagni, tegund RAID kerfa, varahlutaverðum og eftir því hverskonar bilun er um að ræða og hvaða aðferð þarf að beita. Við gefum fast verð eftir bilanagreiningu — engar óvæntar viðbætur.
Hvernig fæ ég gögnin mín afhent?
Við afhendum gögnin á nýjum diskum sem hægt er að kaupa af okkur, á diskum sem viðskiptavinur lætur af hendi, eða með rafrænum hætti fyrir smærri gagnamagn (undir 100GB). Við sendum einnig HTML skrá með lista yfir öll gögn sem fundust.
Hvað segja viðskiptavinir okkar?
Við erum stolt af framúrskarandi þjónustu og árangri
Ég fékk mjög góða þjónustu. Móttaka verkefna er einföld og góð. Þjónustan er unnin hratt og örugglega. Í mínu tilfelli var um að ræða erfitt verkefni en ég fékk öll gögnin mín til baka.
Þorgeir Arnórsson
Stutt og laggott.. Kom með ónýtan disk en eftir mikið puð hjá Datatech var hægt að bjarga öllu úr disknum og setja yfir í þennan 'itty bitty' disk frá þeim. Draumur og allir ánægðir að geta loks séð allt aftur.
Leifur Reynir Björnsson
Ég fékk fyrirmyndarþjónustu. Persónuleg tölvugögn mín voru illu heilli að mestu leyti vistuð á einum diski, sem varð allt í einu ólesanlegur. Eftir bilanagreiningu var mér bent á Datatech. Þar var gögnunum bjargað 100%. Öll samskipti voru eins og best verður á kosið.
Bjarni Frímann Karlsson
Virkilega hröð og professional þjónusta. Bjargaði gögnunum mínum 100% og var alltaf til staðar að svara hvaða spurningum sem er. Mæli með.
Helga Lilja Magnúsdóttir
Apple verkstæði gat ekkert gert fyrir mig og bentu mér á Datatech en lofuðu ekki árangri. Ég var ekki bjartsýnn en ákvað að prófa. Þetta tók tíma en tókst og það var staðið við kostnaðaráætlunina. Ég get þeim bestu mögulegu meðmæli.
Gunnar Árnason, Hljóðmaður
Aðrar gagnabjörgunarþjónustur
Við bjóðum einnig upp á gagnabjörgun af öðrum tegundum geymslumiðla

Hvernig á að koma búnaðinum til okkar?
Stofnaðu þjónustubeiðni
Fylltu út eyðublaðið á vefsíðunni okkar
Komdu með tækið til Pixlar
Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík
Fáðu bilanagreiningu og verðmat
Þú samþykkir eða hafnar tilboðinu
Pixlar – Móttökustaður
Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík
Virka daga: 10:00 – 18:00
Laugardaga: 11:00 – 15:00
Einnig er hægt að senda búnaðinn í pósti. Hafðu samband til að fá leiðbeiningar.
RAID kerfið þitt bilaði?
Stofnaðu þjónustubeiðni og komdu búnaðinum til okkar, þó þér hafi verið sagt annarstaðar að ekkert væri hægt að gera til að bjarga gögnunum þínum. Við erum sérfræðingar í gagnabjörgun og búum yfir sérþekkingu í faginu og notum sérhæfðan gagnabjörgunarbúnað frá Acelab, DeepSpar og HddSurgery til að tryggja hámarks árangur.



