Gagnabjörgun af USB kubbum

Við björgum gögnum af öllum gerðum af USB minniskubbum, hvort sem gögnum hefur verið eytt, kubburinn dauður eða kemur ekki fram í stýrikerfi.

Eina fyrirtækið á Íslandi sem sérhæfir sig í gagnabjörgun, starfandi síðan 2012.

Gagnabjörgun af USB kubbum - Datatech

Samstarfsaðilar

PC-3000 logo
Seagate logo
Western Digital logo
DeepSpar logo
PC-3000 logo
Seagate logo
Western Digital logo
DeepSpar logo

Við björgum af öllum gerðum USB lykla

USB 2.0

Eldri minnislyklar

USB 3.0/3.1

Háhraða minnislyklar

USB-C

Nýjasta kynslóð

Dulkóðaðir

Öryggislyklar

Gagnabjörgunarbúnaður

Brotinn USB tengill?

Ef USB tengillinn er brotinn er oft hægt að bjarga gögnunum. Við getum tengst beint við PCB plötuna og lesið gögnin af flash minninu. Þetta krefst sérhæfðs búnaðar og reynslu sem við höfum.

Örgjörvaviðgerðir

Við getum gert viðgerðir á PCB plötum og tengingum.

NAND lestur

Við getum lesið beint af NAND flash kubbum ef þörf krefur.

Ekki reyna sjálfur

Rangar viðgerðir geta valdið varanlegum skemmdum á gögnunum.

Fyrstu aðgerðir skipta öllu máli!

Ef USB lykillinn þinn þekkist ekki eða gögn hafa glatast, hættu strax að nota hann. Ekki reyna að formatta hann eða keyra gagnabjargunar hugbúnað sjálfur þar sem það getur gert málin verri.

Datatech er eina fyrirtækið á Íslandi sem sérhæfir sig í gagnabjörgun og hefur verið starfandi í faginu síðan 2012 og býr yfir sérhæfðum tæknibúnaði og þekkingu til að klára málin hérlendis.

  • Ekki reyna að fara eftir ráðleggingum frá YouTube
  • Ekki reyna ókeypis gagnabjörgunarhugbúnað
  • Ekki reyna að laga brotinn USB lykil sjálfur
  • Ekki fara með lykilinn á venjulegt tölvuverkstæði
  • Ekki formatta lykilinn aftur

Við björgum gögnum úr

  • Rafrænar bilanir
  • Vélrænar skemmdir (brotinn tengill)
  • Firmware vandamál
  • NAND flash bilanir
  • Vatnsskemmdir
  • Formatting villur
  • Óviljandi eyðing gagna
  • USB þekkist ekki í tölvu

Algeng einkenni

  • Lykill þekkist ekki í tölvunni
  • Brotinn USB tengill
  • Skemmdar skrár og möppur
  • Formatting villa
  • „Please insert disk" villa
  • Raw file system

Afhverju að velja sérfræðinga?

Datatech er eina fyrirtækið á Íslandi sem sérhæfir sig í gagnabjörgun og hefur verið starfandi í faginu síðan árið 2012. Við búum yfir sérhæfðum tæknibúnaði og þekkingu til að klára málin hérlendis.

Sérfræðingar okkar hafa yfir 22 ára starfsreynslu í úrlausn flókinna gagnabjörgunarverkefna og hafa hlotið þjálfun og vottanir frá alþjóðlegum leiðtogum í gagnabjörgun eins og Acelab.

Varast skal að fara með USB lykla í gagnabjörgun hjá venjulegum tölvuverkstæðum þar sem engin sérþekking er til staðar og rangar aðgerðir geta valdið varanlegum skemmdum.

Sérhæfður búnaður hjá Datatech
22+
Ára reynsla
91%
Árangur
2012
Stofnað
Acelab
Vottað

Spurt og svarað

Hvað gerist eftir að ég kem með USB kubb í gagnabjörgun?

Við skoðum kubbinn og gerum bilanagreiningu. Þú færð verðmat og mat á líkum á árangri áður en við byrjum. Ef þú samþykkir tilboðið byrjum við strax á gagnabjörguninni.

Hvað kostar gagnabjörgun af USB kubbum?

Verð fer eftir tegund bilunar og hversu flókin hún er. Við gefum alltaf verðmat eftir skoðun. Fast tilboð er gefið eftir bilanagreiningu og þú veist nákvæmlega hvað þú ert að skuldbinda þig til.

Hvernig fæ ég gögnin mín afhent?

Gögnin eru afhent á nýjum USB diski eða send rafrænt ef um minna gagnamagn er að ræða. Við sendum þér lista yfir öll björguð gögn áður en þú sækir þau.

Hvað tekur gagnabjörgun langan tíma?

Tíminn fer eftir hversu flókin bilunin er. Einföld verkefni taka oft 1-3 virka daga, flóknari verkefni geta tekið lengri tíma.

Hvað segja viðskiptavinir okkar?

Við erum stolt af framúrskarandi þjónustu og árangri

Ég fékk mjög góða þjónustu. Móttaka verkefna er einföld og góð. Þjónustan er unnin hratt og örugglega. Í mínu tilfelli var um að ræða erfitt verkefni en ég fékk öll gögnin mín til baka.

Þorgeir Arnórsson

Stutt og laggott.. Kom með ónýtan disk en eftir mikið puð hjá Datatech var hægt að bjarga öllu úr disknum og setja yfir í þennan 'itty bitty' disk frá þeim. Draumur og allir ánægðir að geta loks séð allt aftur.

Leifur Reynir Björnsson

Ég fékk fyrirmyndarþjónustu. Persónuleg tölvugögn mín voru illu heilli að mestu leyti vistuð á einum diski, sem varð allt í einu ólesanlegur. Eftir bilanagreiningu var mér bent á Datatech. Þar var gögnunum bjargað 100%. Öll samskipti voru eins og best verður á kosið.

Bjarni Frímann Karlsson

Virkilega hröð og professional þjónusta. Bjargaði gögnunum mínum 100% og var alltaf til staðar að svara hvaða spurningum sem er. Mæli með.

Helga Lilja Magnúsdóttir

Apple verkstæði gat ekkert gert fyrir mig og bentu mér á Datatech en lofuðu ekki árangri. Ég var ekki bjartsýnn en ákvað að prófa. Þetta tók tíma en tókst og það var staðið við kostnaðaráætlunina. Ég get þeim bestu mögulegu meðmæli.

Gunnar Árnason, Hljóðmaður

Aðrar gagnabjörgunarþjónustur

Við bjóðum einnig upp á gagnabjörgun af öðrum tegundum geymslumiðla

Pixlar móttökustaður

Hvernig á að koma búnaðinum til okkar?

1

Stofnaðu þjónustubeiðni

Fylltu út eyðublaðið á vefsíðunni okkar

2

Komdu með USB lykilinn til Pixlar

Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík

3

Fáðu bilanagreiningu og verðmat

Þú samþykkir eða hafnar tilboðinu

Pixlar – Móttökustaður

Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík

Virka daga: 10:00 – 18:00

Laugardaga: 11:00 – 15:00

Einnig er hægt að senda USB lykilinn í pósti. Hafðu samband til að fá leiðbeiningar.

Tapaðir þú gögnum af USB lyklinum?

Stofnaðu þjónustubeiðni og komdu búnaðinum til okkar, þó þér hafi verið sagt annarsstaðar að ekkert væri hægt að gera til að bjarga gögnunum þínum. Við erum sérfræðingar í gagnabjörgun og höfum bjargað gögnum af þúsundum USB lykla.

Neyðartilfelli?

Við bjóðum upp á hrað- og neyðarþjónustu þegar mikið liggur á!

Hraðþjónusta í boði, verkefni er hafið næsta virka dag.
Neyðarþjónusta í boði, verkefni hafið samdægurs ef komið er fyrir hádegi.