Gagnabjörgun af hörðum diskum

Við björgum gögnum af öllum gerðum harðra diska (HDD), óháð stýrikerfi. Gagnabjörgunarverkefnum höfum við skipt upp í þrjá flokka eftir því hversu mikið þarf að gera til þess að bjarga gögnum.

Eina fyrirtækið á Íslandi sem sérhæfir sig í gagnabjörgun, starfandi síðan 2012.

Gagnabjörgun af hörðum diskum - Datatech

Samstarfsaðilar

PC-3000 logo
Seagate logo
Western Digital logo
DeepSpar logo
PC-3000 logo
Seagate logo
Western Digital logo
DeepSpar logo
PC-3000 gagnabjörgunarbúnaður

Afhverju að velja sérfræðinga í gagnabjörgun?

Datatech er eina fyrirtækið á Íslandi sem sérhæfir sig í gagnabjörgun og hefur verið starfandi í faginu síðan árið 2012 og býr yfir sérhæfðum tæknibúnaði og þekkingu til að klára málin hérlendis.

Sérfræðingar okkar hafa yfir 22 ára starfsreynslu í úrlausn flókinna gagnabjörgunarverkefna. Þeir hafa hlotið þjálfun hjá alþjóðlegum leiðtogum í gagnabjörgun eins og Acelab og eru með virkar vottanir frá þeim.

Veldu trausta aðila með þekkingu og raunverulega reynslu í faginu til þess að endurheimta gögnin þín. Varast skal að fara með harða diska í gagnabjörgun hjá venjulegum tölvuverkstæðum þar sem engin sérþekking er til staðar. Við höfum margsinnis fengið verkefni sem hafa farið annað fyrst og búið er að útiloka alla möguleika á gagnabjörgun með röngum aðgerðum eða tilraunastarfsemi.

22+
Ára reynsla
91%
Árangur
2012
Stofnað
Acelab
Vottað

Fyrstu aðgerðir skipta öllu máli

Þegar þú lendir í því óhappi að ná ekki sambandi við harða diskinn þinn og gögnin eru í hættu, þá er mikilvægt að leita strax til fagaðila og ekki láta venjuleg tölvuverkstæði reyna gagnabjörgun fyrst, þar sem þau eru hvorki með réttu tækin eða tæknilega þekkingu til að ná árangri.

Við höfum fengið mörg verkefni til okkar sem hafa farið fyrst til venjulegra tölvuverkstæða þar sem tilraunastarfsemi þeirra hefur gert illt verra og í jaðartilvikum gert gagnabjörgun ómögulega.

  • Ekki reyna YouTube „viðgerðir" á diskinn
  • Ekki nota ókeypis gagnabjörgunarhugbúnað
  • Ekki setja diskinn í frystinn
  • Ekki fara með diskinn á venjulegt tölvuverkstæði
  • Slökktu strax á tölvunni / aftengdu diskinn

Við björgum gögnum úr

  • Vélrænar bilanir (leshaus, mótor, plötur)
  • Rafrænar bilanir (PCB, firmware)
  • Skemmdir á yfirborði platna
  • Skemmdir sektorar og SMART villur
  • Óviljandi formatting eða eyðing
  • Vatnsskemmdir og brunaskemmdir

Algeng einkenni

  • Diskur snýst ekki
  • Smellir eða klikks í disknum
  • Diskur finnst ekki í stýrikerfi
  • Mjög hægur diskur
  • BIOS/UEFI þekkir ekki diskinn
  • Skemmdar skrár eða möppur

Verðflokkar gagnabjörgunar

Verð á gagnabjörgun fer eftir gagnamagni, tegund disks, varahlutaverðum og eftir því hverskonar bilun er um að ræða og hvaða aðferð þarf að beita.

Gagnabjörgun A
Einföld
29.545 – 59.091 kr.án VSK • 1.0–2.0TB

Í þessum flokki eru flest „einföldu" verkefnin. Skilyrði fyrir þessari leið er að hana er eingöngu hægt að nota þegar vélbúnaður harða disksins er í lagi, og er mögulega með smávægilegar sector skemmdir, og eins t.d. þegar skjölum hefur óvart verið eytt eða hent úr ruslafötu stýrikerfis. Einnig ef skjöl hafa týnst án skýringa, stýrikerfi hefur hrunið, diskurinn hefur verið forsniðinn eða yfirskrifaður.

Algengast
Gagnabjörgun B
Miðlungs
78.788 – 98.485 kr.án VSK • 1.0–2.0TB

Í þessum flokki eru vandamálin erfiðari. Gagnabjörgun B er notuð í verkefnum t.d. þegar harður diskur sést ekki inn í „BIOS" eða My Computer á PC tölvum eða kemur ekki fram í „Disk utility" á Apple tölvum. Einnig ef mikið er um skemmd svæði á disknum (sector skemmdir). Í þessum flokki eru einnig vandamál sem tengjast slitnum leshausum harða disksins, eða hugbúnaðarvillur á stýringu disksins.

Gagnabjörgun C
Flókin
118.182 – 157.576 kr.+ varahlutir 10.000–25.000 kr. án VSK

Erfiðustu verkefnin falla í þennan flokk. Hér þarf að skipta um leshausa innan í harða disknum. Viðgerðir sem þessar fara fram í rykhreinsuðu yfirþrýstu umhverfi og eru tímafrekar og vandasamar. Að lokinni viðgerð á vélbúnaði eru notaðar „B" gagnabjörgunaraðferðir eins og lýst er hér að ofan.

* Verð eru dæmi um algengustu diskstærðir (1.0–2.0TB). Ókeypis bilanagreining ef tilboð er samþykkt.

Afhverju er gagnabjörgun kostnaðarsöm?

Gagnabjörgun er sérhæft fag og til þess að hægt sé að bjóða upp á svona sérhæfða þjónustu þurfum við sífellt að vera læra, sækja okkur þekkingu á námskeiðum hjá erlendum fagaðilum þar sem markaðurinn er síbreytilegur og nýjungar koma út á hverju ári. Við þurfum að kaupa dýrar áskriftir af hugbúnaði sem aðeins gagnabjörgunarfyrirtæki kaupa, passa upp á að vera með nýjustu útgáfur af sérsmíðuðum tæknibúnaði frá framleiðendum eins og AceLab, DeepSpar, HDD surgery. Við þurfum öflugan tölvubúnað sem þarf að endurnýja reglulega. Við fjárfestum í nýjum búnaði á hverju ári til að halda í við nýjungar og geta boðið upp á þessa mikilvægu neyðarþjónustu.

  • Sérhæfður búnaður (PC-3000, DeepSpar, HDD surgery) sem kostar mikla peninga
  • Rykhreinsuð vinnuaðstaða fyrir viðgerðir á opnum diskum
  • Þurfum að reka varahlutalager og passa að eiga algengustu gerðir varahluta á lager
  • Viðvarandi þjálfun og vottanir frá Acelab og öðrum framleiðendum
  • Áskriftir að sérhæfðum hugbúnaði sem endurnýjast árlega
Rykhreinsuð vinnuaðstaða hjá Datatech

Hvað segja viðskiptavinir okkar?

Við erum stolt af framúrskarandi þjónustu og árangri

Ég fékk mjög góða þjónustu. Móttaka verkefna er einföld og góð. Þjónustan er unnin hratt og örugglega. Í mínu tilfelli var um að ræða erfitt verkefni en ég fékk öll gögnin mín til baka.

Þorgeir Arnórsson

Stutt og laggott.. Kom með ónýtan disk en eftir mikið puð hjá Datatech var hægt að bjarga öllu úr disknum og setja yfir í þennan 'itty bitty' disk frá þeim. Draumur og allir ánægðir að geta loks séð allt aftur.

Leifur Reynir Björnsson

Ég fékk fyrirmyndarþjónustu. Persónuleg tölvugögn mín voru illu heilli að mestu leyti vistuð á einum diski, sem varð allt í einu ólesanlegur. Eftir bilanagreiningu var mér bent á Datatech. Þar var gögnunum bjargað 100%. Öll samskipti voru eins og best verður á kosið.

Bjarni Frímann Karlsson

Virkilega hröð og professional þjónusta. Bjargaði gögnunum mínum 100% og var alltaf til staðar að svara hvaða spurningum sem er. Mæli með.

Helga Lilja Magnúsdóttir

Apple verkstæði gat ekkert gert fyrir mig og bentu mér á Datatech en lofuðu ekki árangri. Ég var ekki bjartsýnn en ákvað að prófa. Þetta tók tíma en tókst og það var staðið við kostnaðaráætlunina. Ég get þeim bestu mögulegu meðmæli.

Gunnar Árnason, Hljóðmaður

Aðrar gagnabjörgunarþjónustur

Við bjóðum einnig upp á gagnabjörgun af öðrum tegundum geymslumiðla

Pixlar móttökustaður

Hvernig á að koma búnaðinum til okkar?

1

Stofnaðu þjónustubeiðni

Fylltu út eyðublaðið á vefsíðunni okkar

2

Komdu með tækið til Pixlar

Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík

3

Fáðu bilanagreiningu og verðmat

Þú samþykkir eða hafnar tilboðinu

Pixlar – Móttökustaður

Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík

Virka daga: 10:00 – 18:00

Laugardaga: 11:00 – 15:00

Einnig er hægt að senda búnaðinn til okkar frítt með Póstinum. Þú einfaldlega velur "senda búnað frítt með póstinum" þegar þú stofnar þjónustubeiðni og færð strax sent strikamerki með tölvupósti sem þú skannar á næsta pósthúsi til að senda búnaðinn frítt til okkar.

Tapaðir þú gögnum af harða disknum?

Stofnaðu þjónustubeiðni og komdu búnaðinum til okkar, þó þér hafi verið sagt annarstaðar að ekkert væri hægt að gera til að bjarga gögnunum þínum. Við erum sérfræðingar í gagnabjörgun og búum yfir sérþekkingu í faginu og notum sérhæfðan gagnabjörgunarbúnað frá Acelab, DeepSpar og HddSurgery til að tryggja hámarks árangur.

Neyðartilfelli?

Við bjóðum upp á hrað- og neyðarþjónustu þegar mikið liggur á!

Hraðþjónusta í boði, verkefni er hafið næsta virka dag.
Neyðarþjónusta í boði, verkefni hafið samdægurs ef komið er fyrir hádegi.