Gagnabjörgun af SSD/Flash diskum

Við björgum gögnum af SSD / Flash / NAND (Solid State Drive) diskum. Við búum yfir sérhæfðum búnaði til þess að afrita gögn beint af NAND/Flash kubbunum sem liggja á PCB plötum SSD diska.

Eina fyrirtækið á Íslandi sem sérhæfir sig í gagnabjörgun, starfandi síðan 2012.

Gagnabjörgun af SSD diskum - Datatech

Samstarfsaðilar

PC-3000 logo
Seagate logo
Western Digital logo
DeepSpar logo
PC-3000 logo
Seagate logo
Western Digital logo
DeepSpar logo
PC-3000 gagnabjörgunarbúnaður

Afhverju að velja sérfræðinga í gagnabjörgun?

SSD gagnabjörgun er mjög flókin og í raun mun erfiðara að eiga við SSD diska heldur en hefðbunda harða diska. Flestir SSD diskar eru með innbyggða dulkóðun (e. onboard encryption) sem gerir gagnabjörgun erfiðari. Ef ekki tekst að ná dulkóðunarlykli af CPU disksins þá er ekki hægt að bjarga gögnunum.

Datatech er eina fyrirtækið á Íslandi sem sérhæfir sig í gagnabjörgun og hefur verið starfandi í faginu síðan árið 2012 og býr yfir sérhæfðum tæknibúnaði og þekkingu til að klára málin hérlendis.

Sérfræðingar okkar hafa yfir 22 ára starfsreynslu í úrlausn flókinna gagnabjörgunarverkefna. Þeir hafa hlotið þjálfun hjá alþjóðlegum leiðtogum í gagnabjörgun eins og Acelab og eru með virkar vottanir frá þeim.

22+
Ára reynsla
91%
Árangur
2012
Stofnað
Acelab
Vottað

Fyrstu aðgerðir skipta öllu máli

Mikilvægt er að þú vitir hvað þú ert að gera þegar kemur að gagnabjörgun af SSD diskum og því mikilvægt að leita strax til fagaðila heldur en að leita til venjulegra tölvuverkstæða þar sem fyrstu aðgerðir skipta öllu máli og mikilvægt er að tæknimaðurinn viti nákvæmlega hvað hann er að gera.

Ef þú vilt hámarka líkur á endurheimt eyddra gagna af tölvu með SSD eða NVMe disk, þá er öruggast að taka tölvuna strax úr sambandi við rafmagn, ekki slökkva. Bara kippa henni úr sambandi og því fyrr því betra.

  • Ekki reyna YouTube „viðgerðir" á diskinn
  • Ekki nota ókeypis gagnabjörgunarhugbúnað
  • Ekki setja diskinn í frystinn
  • Ekki fara með diskinn á venjulegt tölvuverkstæði
  • Ekki taka diskinn úr tölvunni og reyna lesa með annari tölvu
  • Taktu tölvuna strax úr sambandi við rafmagn — ekki slökkva á henni

Við björgum gögnum af öllum gerðum SSD diska

SATA SSD diskar
NVMe SSD diskar
M.2 SSD diskar
PCIe SSD diskar
Innbyggðir (onboard) SSD diskar
Macbook SSD diskar
USB SSD diskar

Við björgum gögnum úr

  • NAND flash minni bilanir
  • Stýringar (controller) bilanir
  • Firmware vandamál
  • Dulkóðuð gögn (BitLocker, FileVault)
  • TRIM og wear leveling vandamál
  • Innbyggð dulkóðun (onboard encryption)

Algeng einkenni

  • Diskur finnst ekki í stýrikerfi
  • BIOS/UEFI þekkir ekki diskinn
  • Tölvan ræsist ekki
  • Mjög hægur SSD diskur
  • Skemmdar skrár eða möppur
  • Óviljandi formatting eða eyðing

Eyddir þú óvart gögnum af SSD disk?

SSD diskar eru erfiðari þegar kemur að því að endurheimta eydd gögn vegna svokallaðrar TRIM virkni eða “Garbage collection”. Þessi virkni eyðir gagnablokkum varanlega eftir að stýrikerfið sendir skipun um eyðingu.

Ólíkt hörðum diskum, sem aðeins fela gögn frá stýrikerfinu án þess að eyða þeim varanlega, eyða SSD diskar gögnunum algjörlega.

Mikilvægt: Ef þú vilt hámarka líkur á endurheimt eyddra gagna af tölvu með SSD eða NVMe disk, þá er öruggast að taka tölvuna strax úr sambandi við rafmagn, ekki slökkva á henni. Bara kippa henni úr sambandi og því fyrr því betra. Alls ekki taka diskinn og reyna lesa með annari tölvu, þá eyðast gögnin varanlega.

Sérhæfður gagnabjörgunarbúnaður hjá Datatech

Algengar spurningar um SSD gagnabjörgun

Svör við algengum spurningum um gagnabjörgun af SSD diskum

Hver er munurinn á hörðum disk og SSD disk?

SSD diskar geyma gögn á allt annan hátt en harðir diskar. SSD diskar nota flash minni og eru engar segulplötur, leshaus eða hreyfanlegir hlutar í þeim. Þeir þola betur högg og áföll. Flestir SSD diskar eru með innbyggða dulkóðun sem gerir gagnabjörgun flóknari. SSD diskar eru u.þ.b. 100x hraðari en harðir diskar.

Er hægt að bjarga gögnum eftir formatting á SSD?

Gagnabjörgun eftir formatting á SSD er afar sjaldgæf þar sem SSD diskar virka allt öðruvísi en harðir diskar. Flestir nútíma SSD diskar eru með TRIM virkni eða „Garbage collection" sem eyðir gagnablokkum varanlega eftir að stýrikerfið sendir skipun um eyðingu. Ólíkt hörðum diskum, sem aðeins fela gögn frá stýrikerfinu án þess að eyða þeim varanlega.

Hvað kostar gagnabjörgun af SSD disk?

Verð á SSD gagnabjörgun fer eftir ástandi disksins. Þar sem til eru óteljandi gerðir af SSD diskum er hvert verkefni skoðað og metið sérstaklega. Fast tilboð er gefið eftir bilanagreiningu. Ef viðskiptavinur hafnar tilboði er greidd skoðun samkvæmt gjaldskrá.

Afhverju er SSD gagnabjörgun kostnaðarsöm?

SSD gagnabjörgun og krefst sérhæfðs vélbúnaðar til að lesa beint af NAND/Flash kubbum. Auk þess þarf sérhæfðan hugbúnað til að vinna úr dulkóðuðum gögnum og endurbyggja skráarkerfi.

  • Sérhæfður búnaður (PC-3000 SSD, DeepSpar)
  • NAND lesari til að afrita gögn beint af flash kubbum
  • Sérhæfður hugbúnaður frá Acelab ofl.
  • Hvert verkefni krefst einstakrar nálgunar vegna fjölbreytni SSD diska
  • Það þarf að sérmennta starfsfólk, sækja námskeið árlega hjá Acelab og öðrum framleiðendum
  • Áskriftir að sérhæfðum hugbúnaði sem endurnýjast árlega
Rykhreinsuð vinnuaðstaða hjá Datatech

Hvað segja viðskiptavinir okkar?

Við erum stolt af framúrskarandi þjónustu og árangri

Ég fékk mjög góða þjónustu. Móttaka verkefna er einföld og góð. Þjónustan er unnin hratt og örugglega. Í mínu tilfelli var um að ræða erfitt verkefni en ég fékk öll gögnin mín til baka.

Þorgeir Arnórsson

Stutt og laggott.. Kom með ónýtan disk en eftir mikið puð hjá Datatech var hægt að bjarga öllu úr disknum og setja yfir í þennan 'itty bitty' disk frá þeim. Draumur og allir ánægðir að geta loks séð allt aftur.

Leifur Reynir Björnsson

Ég fékk fyrirmyndarþjónustu. Persónuleg tölvugögn mín voru illu heilli að mestu leyti vistuð á einum diski, sem varð allt í einu ólesanlegur. Eftir bilanagreiningu var mér bent á Datatech. Þar var gögnunum bjargað 100%. Öll samskipti voru eins og best verður á kosið.

Bjarni Frímann Karlsson

Virkilega hröð og professional þjónusta. Bjargaði gögnunum mínum 100% og var alltaf til staðar að svara hvaða spurningum sem er. Mæli með.

Helga Lilja Magnúsdóttir

Apple verkstæði gat ekkert gert fyrir mig og bentu mér á Datatech en lofuðu ekki árangri. Ég var ekki bjartsýnn en ákvað að prófa. Þetta tók tíma en tókst og það var staðið við kostnaðaráætlunina. Ég get þeim bestu mögulegu meðmæli.

Gunnar Árnason, Hljóðmaður

Aðrar gagnabjörgunarþjónustur

Við bjóðum einnig upp á gagnabjörgun af öðrum tegundum geymslumiðla

Pixlar móttökustaður

Hvernig á að koma búnaðinum til okkar?

1

Stofnaðu þjónustubeiðni

Fylltu út eyðublaðið á vefsíðunni okkar

2

Komdu með tækið til Pixlar

Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík

3

Fáðu bilanagreiningu og verðmat

Þú samþykkir eða hafnar tilboðinu

Pixlar – Móttökustaður

Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík

Virka daga: 10:00 – 18:00

Laugardaga: 11:00 – 15:00

Einnig er hægt að senda búnaðinn í pósti. Hafðu samband til að fá leiðbeiningar.

Tapaðir þú gögnum af SSD disk?

Stofnaðu þjónustubeiðni og komdu búnaðinum til okkar, þó þér hafi verið sagt annarstaðar að ekkert væri hægt að gera til að bjarga gögnunum þínum. Við erum sérfræðingar í gagnabjörgun og búum yfir sérþekkingu í faginu og notum sérhæfðan gagnabjörgunarbúnað frá Acelab, DeepSpar og HddSurgery til að tryggja hámarks árangur.

Neyðartilfelli?

Við bjóðum upp á hrað- og neyðarþjónustu þegar mikið liggur á!

Hraðþjónusta í boði, verkefni er hafið næsta virka dag.
Neyðarþjónusta í boði, verkefni hafið samdægurs ef komið er fyrir hádegi.