Gagnabjörgun af minniskortum

Við björgum gögnum af biluðum eða dauðum SD, SDHC, SDXC, Micro SD, Micro SDHC, xD, og compact flash minniskortum. Einnig eftir að búið er að formata kortið óvart eða eyða gögnunum.

Eina fyrirtækið á Íslandi sem sérhæfir sig í gagnabjörgun, starfandi síðan 2012.

Gagnabjörgun af minniskortum - Datatech

Samstarfsaðilar

PC-3000 logo
Seagate logo
Western Digital logo
DeepSpar logo
PC-3000 logo
Seagate logo
Western Digital logo
DeepSpar logo

Við björgum af öllum helstu gerðum minniskorta

SD kort

Standard SD, SDHC, SDXC

microSD kort

Micro SD, SDHC, SDXC

CompactFlash

CF Type I og II

CFast kort

Fagleg myndbandsupptaka

XQD kort

Háhraða fagmyndavélar

CFexpress

Nýjasta kynslóð

Gagnabjörgunarbúnaður

Við hjálpum fagfólki og áhugafólki

Minniskort eru oft notuð til að geyma ómetanlegar minningar og mikilvæg gögn. Við höfum hjálpað mörgum ljósmyndurum, kvikmyndagerðarfólki og einstaklingum að bjarga dýrmætum myndum og myndböndum.

Ljósmyndun

Brúðkaupsljósmyndir, atburðir, portrettmyndir

Myndbandsupptökur

Kvikmyndagerð, viðburðir, YouTube

Drónaupptökur

DJI, Mavic og aðrir drónar

Fyrstu aðgerðir skipta öllu máli!

Ef þú hefur glatað myndum eða gögnunum af minniskortinu er afar mikilvægt að hætta strax að nota kortið. Ef þú tekur fleiri myndir eða skrifar ný gögn á kortið geta þau yfirskrifað gögnin sem þú vilt bjarga.

Hafðu strax samband við okkur til að fá rétta ráðgjöf og auka líkurnar á fullri gagnabjörgun.

  • Ekki taka fleiri myndir á kortið eftir að gögn hafa glatast
  • Ekki reyna ókeypis gagnabjörgunarhugbúnað
  • Ekki formatta kortið aftur
  • Ekki reyna að laga kortið sjálfur
  • Ekki setja kortið í aðra myndavél til að prófa

Við björgum gögnum af

  • Rafrænar bilanir á minniskortum
  • Skemmdir vegna vatns eða hita
  • Óviljandi forsníðing (formatting)
  • Skemmdar skrár og möppur
  • Kort sem þekkist ekki í tölvu
  • Villur við lestur
  • Eytt myndum eða myndböndum óvart
  • Broken file system

Algeng einkenni

  • Kortið þekkist ekki í myndavél eða tölvu
  • Villur við lestur mynda
  • Skemmdar eða ólæsanlegar skrár
  • Kortið biður um formatting
  • Gögnin hurfu eftir að kortið var fjarlægt
  • Kort bilaði á meðan myndatöku stóð

Afhverju að velja sérfræðinga?

Datatech er eina fyrirtækið á Íslandi sem sérhæfir sig í gagnabjörgun og hefur verið starfandi í faginu síðan árið 2012. Við búum yfir sérhæfðum tæknibúnaði og þekkingu til að klára málin hérlendis.

Sérfræðingar okkar hafa yfir 22 ára starfsreynslu í úrlausn flókinna gagnabjörgunarverkefna og hafa hlotið þjálfun og vottanir frá alþjóðlegum leiðtogum í gagnabjörgun eins og Acelab.

Við notum fagaðferðir sem tryggja að upprunalegu gögnin séu aldrei í hættu á meðan gagnabjörgun fer fram.

Sérhæfður búnaður hjá Datatech
22+
Ára reynsla
91%
Árangur
2012
Stofnað
Acelab
Vottað

Spurt og svarað

Hvað gerist eftir að ég kem með myndavélakort í gagnabjörgun?

Við skoðum kortið og gerum bilanagreiningu. Þú færð verðmat og upplýsingar um líkur á árangri áður en við byrjum. Ef þú samþykkir tilboðið byrjum við strax á gagnabjörguninni.

Hvað kostar gagnabjörgun af minniskortum?

Verð fer eftir tegund bilunar og hversu mikið þarf að gera. Við gefum alltaf verðmat eftir skoðun. Fast tilboð er gefið eftir bilanagreiningu og þú veist nákvæmlega hvað þú ert að skuldbinda þig til.

Hvernig fæ ég gögnin mín afhent?

Gögnin eru afhent á nýjum USB diski eða þú getur sótt þau rafrænt. Við sendum þér lista yfir öll björguð gögn áður en þú sækir þau.

Hvað tekur gagnabjörgun langan tíma?

Tíminn fer eftir hversu flókin bilunin er. Einföld verkefni taka oft 1-3 virka daga, flóknari verkefni geta tekið lengri tíma.

Hvað segja viðskiptavinir okkar?

Við erum stolt af framúrskarandi þjónustu og árangri

Ég fékk mjög góða þjónustu. Móttaka verkefna er einföld og góð. Þjónustan er unnin hratt og örugglega. Í mínu tilfelli var um að ræða erfitt verkefni en ég fékk öll gögnin mín til baka.

Þorgeir Arnórsson

Stutt og laggott.. Kom með ónýtan disk en eftir mikið puð hjá Datatech var hægt að bjarga öllu úr disknum og setja yfir í þennan 'itty bitty' disk frá þeim. Draumur og allir ánægðir að geta loks séð allt aftur.

Leifur Reynir Björnsson

Ég fékk fyrirmyndarþjónustu. Persónuleg tölvugögn mín voru illu heilli að mestu leyti vistuð á einum diski, sem varð allt í einu ólesanlegur. Eftir bilanagreiningu var mér bent á Datatech. Þar var gögnunum bjargað 100%. Öll samskipti voru eins og best verður á kosið.

Bjarni Frímann Karlsson

Virkilega hröð og professional þjónusta. Bjargaði gögnunum mínum 100% og var alltaf til staðar að svara hvaða spurningum sem er. Mæli með.

Helga Lilja Magnúsdóttir

Apple verkstæði gat ekkert gert fyrir mig og bentu mér á Datatech en lofuðu ekki árangri. Ég var ekki bjartsýnn en ákvað að prófa. Þetta tók tíma en tókst og það var staðið við kostnaðaráætlunina. Ég get þeim bestu mögulegu meðmæli.

Gunnar Árnason, Hljóðmaður

Aðrar gagnabjörgunarþjónustur

Við bjóðum einnig upp á gagnabjörgun af öðrum tegundum geymslumiðla

Pixlar móttökustaður

Hvernig á að koma búnaðinum til okkar?

1

Stofnaðu þjónustubeiðni

Fylltu út eyðublaðið á vefsíðunni okkar

2

Komdu með minniskortið til Pixlar

Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík

3

Fáðu bilanagreiningu og verðmat

Þú samþykkir eða hafnar tilboðinu

Pixlar – Móttökustaður

Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík

Virka daga: 10:00 – 18:00

Laugardaga: 11:00 – 15:00

Einnig er hægt að senda minniskortið í pósti. Hafðu samband til að fá leiðbeiningar.

Tapaðir þú myndum eða gögnum af minniskortinu?

Stofnaðu þjónustubeiðni og komdu búnaðinum til okkar. Við erum sérfræðingar í gagnabjörgun og höfum bjargað ómetanlegum myndum og myndböndum fyrir þúsundir viðskiptavina.

Neyðartilfelli?

Við bjóðum upp á hrað- og neyðarþjónustu þegar mikið liggur á!

Hraðþjónusta í boði, verkefni er hafið næsta virka dag.
Neyðarþjónusta í boði, verkefni hafið samdægurs ef komið er fyrir hádegi.