Við bjóðum upp á hagkvæmar og fagmannlega hannaðar vefsíður fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Við vinnum með okkar eigið vefumsjónarkerfi sem notandi getur svo fengið aðgang að eftir að vefsíðan er tilbúinn til að sjá um viðhald og smá breytingar.
Verkferlið
Þarfa-greining
Vefhönnun og forritun
Texti, myndir og logo fært inn á síðuna
Síðan tengd við lén
Uppsetning á tölvupósti
Vefur fer í loftið
Við byrjum á því að framkvæma þarfagreiningu til þess að vita hvert er markmiðið með vefsíðunni, hver er hennar tilgangur og hvaða þjónustu eða vöru á að koma á framfæri. Þarfagreining fer þannig fram að við sendum þér ítarlegan spurningalista sem þú svo sendir okkur útfylltan til baka. Eftir að hafa yfirfarið spurningalistan setjum við upp tillögu að uppsetningu áætlaðan tímaramma og verðtilboð í verkefnið. Eftir að verðtilboð er samþykkt hefst vinna við uppsetningu á vefsíðunni. Við ráðfærum okkur við þig beint varðandi hugmyndir af útliti og lita palletu sem þú vilt nota. Þú sendir okkur texta sem þú vilt að komi fram á síðunni eins og lýsingu á þjónustu sem þú býður upp á osfrv. Við sjáum um hýsingu á vefsíðunni, tengjum hana við hvaða lén (domain) sem er .is eða .com og gerum hana aðgengilega fyrir leitarvélar og hönnum hana með leitavélabestun í huga þannig hún komi framarlega í leitarniðurstöðum google og annara leitarvéla. Við setjum upp tölvupóstfang með léni vefsíðunar og leiðbeinum við uppsetningu á honum í snjallsíma og tölvu.