Gagnabjörgun af RAID stæðum

Við hjá Datatech búum yfir sérhæfðum tækjabúnaði til þess að bjarga gögnum af RAID stæðum. Hægt er að framkvæmda RAID gagnabjörgun þegar skráargeiri (e.partition) af RAID stæðunni kemur ekki fram í Windows eða Disk utility í MAC OS og einnig þegar t.d. 2 diskar eru bilaðir í RAID stæðu eða jafnvel fleiri. Einnig getum við endurbyggt hugbúnaðar RAID sem stýrt er í t.d. Windows.
RAID gagnabjörgun Datatech fer þannig fram að við fjarlægjum alla diska úr RAID stæðunni sem þarf að bjarga gögnum af. Því næst er hver og einn diskur skoðaður og fundið út hvort um eitthvað vélbúnaðar vandamál sé að ræða í hverjum disk fyrir sig. Ef svo er þá er “gert við” þann disk eða diska sem eru bilaðir, stundum eru firmware, PCB skemmdir, eða jafnvel leshausar, spindle motor eða preamp á leshaus inn í disknum bilaður. þeir diskar sem hafa reynst bilaðir eru svo klónaðir á nýjan disk af sömu stærð. Því næst eru allir diskarnir tengdir við okkar sérhæfðu RAID gagnabjörgunartölvu og RAID stæðan endurbyggð í sýndarvél. Þegar því er lokið er loks hægt að afrita gögnin inn á nýja RAID stæðu eða aðra gagnageymslu sem viðskiptavinur óskar eftir að nota.
Hvað ber að varast? Ef þú lendir í því að RAID stæðan þín hættir að virka er mjög mikilvægt að eiga ekkert við diskana með neinum hugbúnaði eða reyna endurbyggja sjálfur. Best er að koma með hana strax til okkar og alls ekki taka diskana úr og tengja staka við tölvuna þína því bara með því að “initaliza” þá í stýrikerfið getur þú gert málið mun erfiðara og þá dýrara.
Ef þú hefur týnt verðmætum gögnum er fyrsta skrefið að senda okkur þjónustubeiðni og velja svo með hvaða hætti þú vilt koma búnaðinum til okkar.

- RAID gagnabjörgun er ekki nauðsynleg fyrir RAID1 þar sem það er aðeins speglun á tveimur diskum og hægt er að beita hefðbundinni gagnabjörgun í svoleiðis málum á þann disk sem er líklegast með nýrra afriti.
- Hægt er að bjarga gögnum af RAID stæðum með hvaða skráarkerfi sem er. (NTFS, FAT, exFat, HFS ofl.)
- Hægt er að bjarga gögnum af RAID stæðum með ATA(IDE) eða SATA (Serial ATA) diskum hvort sem um er að ræða Stripe, JBOD, 1E Offset, 1E Adjacent, 4, 5, 5E, 5EE, 6, 6 Adaptec og hvaða útgáfu af RAID sem er (10, 50, 51, 60 o.s.frv..)
- Við gerum föst tilboð í öll RAID gagnabjörgunarmál og hefjum ekki vinnu fyrr en búið er að samþykkja kostnaðaráætlun.
Ef þú hefur týnt verðmætum gögnum er fyrsta skrefið að senda okkur þjónustubeiðni og velja svo með hvaða hætti þú vilt koma búnaðinum til okkar.
Upplýsingar um fyrirtækið
Móttaka verkefnaReykjavíkEftir að þú hefur stofnað þjónustubeiðni getur þú komið með búnaðinn til Pixlar.is samstarfsaðila okkar á Suðurlandsbraut 52, 108 Reykjavík (Bláu húsin, Skeifunni).
ATH: Pixlar sjá aðeins um móttöku verkefna fyrir hönd Datatech og koma ekki að vinnu við gagnabjörgun með neinum hætti og fyrirspurnir um verkefni verða því að beinast beint til Datatech í síma 571-9300. Opnunartími: alla virka daga milli 10.00 og 18.00 og á laugardögum milli kl.11.00 og 15.00 AkureyriVið tökum á móti verkefnum á Akureyri. Eftir að þú hefur stofnað þjónustubeiðni höfum við samband til þess að bóka tíma með þér. Við erum staðsett í Hagahverfi.
|
Hafðu samband við okkurTölvupóstur: datatech@datatech.is
Sími: 571-9300 Símatími er á öllum virkum dögum frá kl.08.00 til 18.00 |
|
|
2022 Allur réttur áskilin | Dtech ehf. kt. 420115-0240 | Tölvupóstfang: datatech@datatech.is |